Fróðleg fimmtudagskvöld í Blómavali – Ræktum sjálf !
Ókeypis fræðslunámskeið í Skútuvogi
Tími: 19:30 – 20:45
Nánari fyrirspurnir er hægt að senda á namskeid@blomaval.is
25. febrúar: Ræktun stofublóma og umpottun - Skráðu þig hér
Stofublóm skapa hlýlegt umhverfi, lífga upp á heimili og vinnustaði og bæta andrúmsloftið.
Góð þekking og skilningur á þeim þáttum er lúta að vaxtarþörfum pottaplantna er lykill að góðum árangri. Fjallað verður um það helsta er varðar ræktun stofublóma, umpottun, vökvun, birtuþörf, áburðagjöf o.fl.
Kynntar verða ýmsar áhugaverðar tegundir stofublóma og spennandi nýjungar.
Leiðbeinandi: Ásdís Ragnarsdóttir, garðyrkjufræðingur
4. mars: Vorlaukar – blómfagrar jurtir - skráðu þig hér
Nú eru vorlaukarnir komnir í hús í Blómavali. Mikill fjöldi lauk- og hnýðisjurta er ræktaður í görðum og hefur áhugi farið vaxandi á síðustu árum. Þær eru blómfagrar jurtir sem fylla garðinn fallegum litum og setja sterkan svip á hann.
Fjallað verður um ræktun áhugaverðra tegunda eins og snotrur, dalíur, gladíólur, liljur, írisir og begóníur.
Leiðbeinendur: Auður Jónsdóttir, garðyrkjufræðingur og Lára Jónsdóttir garðyrkjufræðingur
11. mars: Matjurtargarðurinn – mótun og uppbygging - Fullbókað er á þetta námskeið.
Farið verður yfir staðsetningu, mótun og uppbyggingu matjurtagarðsins með tilliti til sólar, skjóls og fegurðar. Þá verður fjallað um mikilvægi jarðvegs í ræktun til að ná sem mestri uppskeru. Áhersla verður lögð á uppbyggingu fallegs matjurtargarðs m.a með litríkum og ætum blómum.
Leiðbeinandi Auður Jónsdóttir, garðyrkjufræðingur
18. mars: Matjurtagarðurinn - áhugaverðar tegundir - Fullbókað er á þetta námskeið.
Kynnt verður fjölbreytt úrval mat- og kryddjurta. Kennt verður hvernig uppskera má ferskt salat allt sumarið. Hvernig rækta á skarlot-, hvít- og matlauk, garðertur, rauðrófu, dill, steinselju og stilkbeðju auk margra annarra tegunda. Einnig verður fjallað um hvaða tegundir henta vel til ræktunar í kerjum og pottum.
Leiðbeinandi: Auður Jónsdóttir, garðyrkjufræðingur
25. mars: Hollar og gómsætar matjurtir – kartöflur, gulrætur, o.fl. - Fullbókað er á þetta námskeið.Kynntar verða þær tegundir mat- og kryddjurta sem henta til sáningar beint í matjurtargarðinn án forræktunar. Fjallað verður m.a. um sáningu á gulrótum, næpum, radísum, garðertum, nípum, dilli og kóríander. Einnig verður fjallað um ræktun á kartöflum og gerð skil á mismunandi yrkjum þeirra.
Leiðbeinandi: Auður Jónsdóttir, garðyrkjufræðingur
8. apríl: Heimajarðgerð - skráðu þig hér
Við jarðgerð er lífrænum úrgangi umbreytt í moltu, frjósaman jarðveg, sem er góður til að bæta ræktunarjarðveg og auka uppskeru planta. Á fræðslukvöldinu verður farið verður yfir grunnatriði jarðgerðar, tilgang og markmið. Kynntar verða mismunandi aðferðir við jarðgerð sem og ílát.
Leiðbeinandi: Auður Jónsdóttir, garðyrkjufræðingur
15. apríl: Vorverkin í garðinum - - Fullbókað er á þetta námskeið
Að mörgu er að hyggja þegar vorið heldur innreið sína. Fjallað verður m.a. um baráttuna við illgresið og mosann í grasflötinni, jarðveg, gróðursetningar og áburðargjöf.
Leiðbeinandi: Auður Jónsdóttir, garðyrkjufræðingur
29. apríl: Ræktun og klippingar rósa - flutningar á trjám og runnum - - Fullbókað er á þetta námskeið
Mismunandi er hvaða kröfur rósir gera til jarðvegs og staðsetningar og hvernig þær haga blómgun sinni. Fjallað verður um klippingar rósa og ræktun þeirra. Þá verður einnig fjallað um flutninga og gróðursetningar trjáa og runna.
Leiðbeinandi: Kristinn H. Þorsteinsson, garðyrkjufræðingur
6. maí: Fjölbreyttur gróður – tré, runnar og fjölæringar - skráðu þig hér
Fjallað verður um sígrænar og lauffallandi tegundir trjáa, runna og fjölæringa. Sagt verður frá harðgerði þeirra og sérkenni með mismunandi notkun í huga.
Leiðbeinandi :Auður Jónsdóttir, garðyrkjufræðingur
20. maí: Litríkt og blómstrandi sumar í kerjum - skráðu þig hér
Ekkert setur eins mikinn svip á garðinn eins og sjálfar plönturnar. Sumarblóm blómstra allt sumarið í ýmsum fallegum litum sem gleðja augað fram á haustið.
Kynntar verða mismundandi tegundir sumarblóma, ræktun og uppröðun þeirra í kerjum.
Leiðbeinendur: Auður Jónsdóttir, garðyrkjufræðingur og Svava Rafnsdóttir, garðyrkjufræðingur
27. maí: Sumarbústaðalandið – fjölbreyttur trjágróður - Fullbókað er á þetta námskeið.
Aðstæður til ræktunar í sumarbústaðalöndum hafa batnað með hlýnandi loftslagi. Áhugi fyrir fjölbreyttum gróðri fer vaxandi hér á landi.
Fjallað verður um áhugaverðar tegundir sem henta vel í sumarbústaðalandið allt frá sjávarsíðunni og upp til fjalla. Sagt verður frá harðgerði þeirra og sérkenni með mismunandi notkun í huga.
Leiðbeinandi: Kristinn H. Þorsteinsson, garðyrkjufræðingur