Núna er rétti tíminn til að sá sumarblómum, kryddjurtum og grænmeti
Nú er kominn sá árstími þegar hægt er að fara að huga að sáningu sumarblóma, kryddjurta og grænmetis. Sum sumarblómin kalla á sáningu strax í janúar-febrúar, til dæmis stjúpublóm, en öðrum er sáð síðar þegar vorið nálgast.
Nota má hefðbundna sáðbakka, eða skyrdósir, allt eftir því plássi sem við höfum og magni jurta sem við viljum fá. Smærri fræ þarf ekki að hylja með mold, en stærri fræ er gott að hylja með þrefaldri þykkt eigin stærðar á fræi.
Ákjósanlegur spírunarhiti er 18-22°C.
Sáðbakkar eru hafðir í góðri birtu, gott að setja plastpoka sem er opinn í annan endann yfir bakkann (eða ílátin) eða nota lokin sem fylgja ef keyptir eru sérstakir sáðbakkar.
Lokið er tekið af þegar komin eru 3-4 laufblöð á plöntuna og þá er hægt fljótlega að umplanta í smærri potta eða ílát.
Í verslun Blómavals í Skútuvogi er komin sérstök deild þar sem er að finna fræ til sáningar á sumarblómum, kryddjurtum og grænmeti.
Hægt er að velja úr mörg hundruð tegundum og afbrigðum.
Leitið ráða hjá starfsfólki við val á réttu fræjunum og varðandi sáningu og meðhöndlun. Gangi ykkur vel!