UMPOTTUN Á POTTAPLÖNTUM

Með hækkandi sól fer að líða að umpottunartíma pottaplantna.
Við erum að tala um mánaðamót janúar og febrúar.

Umpottun er nauðsynleg þegar rætur plöntunnar fylla allan pottinn og hjá ungum plöntum er ráðlagt að umpotta ár hvert.

Á eldri plöntum er oft nauðsynlegt að skera burt neðst af rótunum ár hvert.

Eldri plöntum er gott að umpotta annað eða þriðja hvert ár eða jafnvel bara hreinsa burt gömlu moldina og bæta nýrri ofan á þá gömlu.

Þegar umpottað er er gott að setja grófan vikur neðst í pottinn, þunnu moldarlagi dreift yfir,  plöntunni komið fyrir og restinni af moldinni þrýst vel að plöntunni.

Moldin
Ýmsar moldartegundir er einnig hægt að fá svo sem kaktusmold, sáðmold og vikurblandaða gróðurmold sem hentar flestum pottaplöntum.
Mold á aldrei að ná alveg að pottabrún því það gerir vökvun erfiðari og gott er að hafa 1,5-2 cm borð á pottinum.
Vökvið strax á eftir.



Áburður
Um það bil hálfum mánuði eftir umpottun er nauðsynlegt að hefja áburðargjöf.
Gott er að byrja að gefa veika blöndu af áburði og auka svo jafnt og þétt þegar líður á sumarið. 
Oft er talað um einn tappa af áburði á móti 1 lítra af vatni yfir sumartímann.
Hægt er að fá sérhæfðar áburðategundir svo sem fyrir blómstrandi plöntur, kaktusa, bonsaii og orkideur svo eitthvað sé nefnt.