KALANCHOE THYRSIFLORA


KJÖRHITI: Heittemprað: 15-20°C.
VÖKVUN: Mold ávallt rök meðan plantan er í blóma.
UMPOTTUN: Eftir þörfum í stærri pott.
ÁBURÐARÞÖRF: Dauf í hvert sinn sem vökvað er mars-sept.

ALMENNT: Kóraltoppur er þykkblöðungur frá Madagaskar. Hann dafnar best í góðri birtu þar sem ekki er of heitt á honum. Til þess að plantan blómstri aftur þarf að sinna henni með vökvun og áburði eins og öðrum plöntum - og að auki verður að sjá til þess að hún fái fjórtán tíma nótt. Kóraltoppur er dæmigerð skammdegisplanta, það er að segja að hann blómgast aðeins þegar nóttin er lengri en dagurinn. Garðyrkjumenn geta haft kóraltopp á markaði allt árið með því að myrkva plönturnar 14 tíma á sólarhring eftir að þær hafa náð nægum þroska. Kóraltoppur nýtur sín einnig sem „græn planta“. Græðlingafjölgun auðveld.

Vara er uppseld
Verð: 

1.799 kr.


Vörunúmer: 10325088