Ég keypti hjá ykkur í vikunni plöntu að nafni Kólus, ég spurði eina þjónustustúlkuna hvort þetta væri inni eða úti blóm og hún sagði plöntuna vera bæði inni og úti planta, og ekki gat ég spurt hana nánar útí plöntuna vegna anna hjá henni. Ég finn að vísu ekki plöntuna á heimasíðu ykkar né á internetinu, þannig að ég ákvað að spyrja ykkur beint með tölvupósti.
Hvað þarf að vökva þessa plöntu oft? væri í lagi að skipta um mold og pott hjá henni núna? er einhver sérstök ummönnun sem hún þarfnast? og hvert er erlenda heiti hennar?
Það er rétt þessi plantar plumar sig vel utandyra á sumrin en þolir ekki frost
er því tekin inn á haustin, þarf mikla vökvun og miðlungsbirtu nafn hennar er Coleus |
Ég var að klippa af rósunum mínum og var að spá hvort að það myndu koma rætur ef ég læt afklippurnar í vatn ?
Það er ekki mikill árangur af því að ræta rósir í vatnni, það gæti einn og einn stilkur myndað rótarvef en ekki víst að það takist að fá alminnilega rótun í framhaldi af því. Algengast er að stinga rósum ca 5-10 cm stilkum í vikurblandaða mold og hafa mikinn loftraka, þe. breiða plast yfir. hafa góðan undirhita og þetta tekur 4-6 vikur ef vel gengur. |
Ég var að klippa af rósunum mínum og var að spá hvort að það myndu koma rætur ef ég læt afklippurnar í vatn ?
Það er ekki mikill árangur af því að ræta rósir í vatnni, það gæti einn og einn stilkur myndað rótarvef en ekki víst að það takist að fá alminnilega rótun í framhaldi af því. Algengast er að stinga rósum ca 5-10 cm stilkum í vikurblandaða mold og hafa mikinn loftraka, þe. breiða plast yfir. hafa góðan undirhita og þetta tekur 4-6 vikur ef vel gengur. |
Ég er með Rifsberjarunna og Fjallarifsberjarunna í garðinum hjá mér. Það kemur mikið af berjum á Rifsberjarunnann á hverju sumri. En á Fjallarifrberjarunnann kemur bara blóm á hverju vori en engin ber. Spurningin er á ekki að koma ber á Fjallarifsið og ef svo er, er þá eitthvað hægt að gera við því.
Fjallarifs er skrautrunni sem ekki er ræktaður til berjaræktunar, en er mikið notað í þétt hekk sem eiga ekki að verða mjög hávaxin, þau taka vel klippingu. |
Ég keypti hjá ykkur lauka um daginn, Animoniur. Ég setti þá í bleyti eins og mér var sagt að gera en það. Kemur ekkert út á sumum þeirra.
Hvernig veit ég hvernig þeir eiga að snúa þegar ég set þá niður. Eins með þá sem opnuðu sig hvað á að snúa upp ? Öll fræin sem ég keypti og setti niður koma ekki upp.
Kær kveðja með ósk um skjót svör svo ég eyðileggi ekki allt saman.
Animonurnar sem þú lagðir í bleyti er best að setja upp á rönd (þe. eins og hjól) ef þú ert í vafa um hvernig þeir eiga að snúa,annars snýr brumið upp sem kemur í ljós og þú setur þá rétt undir moldaryfirborðið, hefur moldina aðeins raka ekki of blauta,.
Fræ spíra á 2-14 dögum dálítið eftir tegundum, ertu með blóm eða grænmeti? það á ekki að setja fræin dýpra en 0.5 sm, þumalfingurreglan 2-3 fræþykktina og rakinn á að vera jafn, því er gott að breiða plast yfir bakkana/pottana meðan fræin eru að spíra |
Ég á í vandræðum með drekatré sem ég keypti hjá ykkur fyrir tæplega ári síðan, en um daginn ákvað ég að umpotta það og keypti mun stærri pott en það var í og setti talsvert mikið af mold með. Ég fattaði ekki hversu mikið magn af vatni þyrfti og hef því að er virðist ofvökvað blómið. Ég er búin að reyna að losa sem mest af aukavatninu en moldin er ennþá mjög blaut og laufin eru farin að gulna, detta af og lafa. Er eitthvað sem ég get gert til þess að bjarga blóminu eða er þetta eitthvað sem jafnar sig?
Þú skalt gefa því eins mikla birtu og hægt er
og passa vökvunina, helst að láta moldina alveg þorna á milli |
Ég var að velta því fyrir mér hvort/hvar væri mögulegt að kaupa venusargildru? Dionaea muscipula. Ég hef brennandi áhuga á að koma einni slíkri á fót.
Blómaval er ekki að selja neinar "flugnaætur" þetta misserið, en stöku sinnum höfum við flutt tinn til gamans nokkrar plöntur með stærri sendigum af pottaplöntum, fræ hef ég ekki séð á markað. Þetta eru spennandi plöntur en ekki sérlega hentugar til ræktunar í stofum,en alveg hægt ef áhugi og natni er á umhirðunni. |
Ég keypti hjá ykkur drekatré, perluburkna og gúmmíplöntu, gætuð þið sent mér leiðbeiningar um umönnun þeirra?
Drekatré þarf meðalbirtu og þarf að þorna mjög vel á milli vökvunar
Perluburkni er hálfskuggaplanta og þarf jafna vökvun
Gúmmitré þarf mikla birtu og þorna vel á milli vökvunnar
Gott að birja áburðargjöf núna og gefa á 2 vikna fresti fyrst og auka svo jafnt og þétt |
Getið þið sent mér leiðbeiningar fyrir vökvun og staðsetningu á Orkidea / Brönugras. Keypti Orkideu og gleymdi miðanum
Birta N_A_V gluggi, á borði innan við góðan birtuglugga. Hiti 15-25 C°, sem jafnast 18-22 C°
Vökvun moldin þvöl, má ekki standa í vatni, gefa ca bolla á viku. Áburður mars-sept.
Umpottun á 3-5 ára fresti þarf sérstaka mold, kallast spænir |
Ég var að fá mér bergfléttu og var að pæla hvort hún þurfti nokkuð mikið að komast í sólarljós eða bara vera nálægt glugga yfir höfuð, veit hvernig á að vökva þessa plöntu en allt annað er ráðgáta fyrir mér
Bergflétta þarf aðeins miðlungs birtu , er t.d fín í austurglugga eða inn af vesturglugga |
Mig langaði að fá leiðbeiningar varðandi umhirðu á pottaplöntu sem heitir Tassmania (Calathea Crocata), þ.e.varðandi vökvun, hversu mikla birtu o.s.frv.
Tassmania er planta sem er hálfskuggaplanta, þorna á milli vökvunnar |
Getið þið sagt mér latneska og/eða enska heitið á stofuaski?
Ég er með amarilis lauk síða í fyrra og er nýlega farið að vökva hann aftur og hann hefur tekið helling við sér, mér finnst blöðin eitthvað svo ljósgræn og lin þau vilja bara hanga niður.
Hvað er málið??
Þú vökvar hann væntanlega of mikið, gefðu honum örlítið af áburði líka |
Get ég nálgast þessar plöntur hjá ykkur? Ef ekki, er hægt að panta þær ?
Veit því miður ekki íslensku heitin á þeim. Purple waffle plant (Hemigraphis alternata), English ivy (Hedera helix), Waxy leaved plant (Hoya carnosa) og Asparagus fern (Asparagus densiflorus)
Í dag eigum við eingöngu Hederu helix sem er Bergflétta
Hoyja og Asparagusinn eru væntanleg í janúar |
Erika
Er Erika inni eða útiblóm ?
Hvernig á að vökva hana?
Þarf hún mikla/ litla birtu
Getur bæði verið inni og úti, hentar betur utandyra þarf lítið að vökva hana,
stendur allavega fram yfir jól og oft lengur. Sem inniplanta er hún þurrkuð,
gott að spreyja hana með góðu lakkspreyi til að hún standi betur.
Staðsetning óháð birtu |
Amaryllis (Riddarastjarna)
Ég keypti mér Amaryllis blóm fyrir jólin og var sagt að ég gæti geymt hann til næstu jóla. Hvernig fer ég að því?
Amaryllis "Riddarastjarna"
Eftir blómgun er laukurinn ræktaður eins og hver önnur pottaplanta, höfð í glugga, gefið vatn og næring svo grænu blöðin á lauknum safni forða til næstu blómgunar. Eftir 4-5 mánuði er plantan tekin úr glugga og vökvun hætt svo laukurinn fari í hvíld. Sú hvíld getur varað í 3-4 mánuði og ef heppnin er með þér potar ný blómastöng sér upp í byrjun næsta vaxtatímabils. |
Benjaminfikus
Er í lagi að umpotta stórum benjaminfikus núna (í ágúst)?
Hann er of stór fyrir pottinn sem hann er í og ekki búið að umpotta í allavega 2 ár.
Það getur verið varasamt að umpotta fikus á þessum tíma nú þegar styttist í skammdegið. Hinsvegar væri örugglega bót í því að taka af gömlu moldinni og bæta nýrri við á efsta laginu. Best er að umpotta í byrjun febrúar. |
Bergflétta
Hvernig á að vökva bergfléttu?
Láta moldina þorna vel á milli vökvunar. |
Dalíur
Er erfitt að rækta dalíur?
Dalíur eru afar skrautleg og tilkomumikil blóm sem ekki þurfa mikla fyrirhöfn eftir að menn hafa eitt sinn komist upp á lagið með þær - og flestum veitist það létt verk. Skjól og sól eru lykilatriðin. Dalíuræturnar eru gróðursettar í 3-5 lítra potta hver fyrir sig. Ein planta er í hverjum pakka. Nokkrar þykkar forðarætur sameinast við rótarháls. Ræturnar eru ekki settar dýpra í moldina en svo að vel rofi í rótarhálsinn. Notið venjulega pottamold og vökvið vel á eftir. Látið pottana standa á björtum stað þar sem ekki frýs, 12-15°C er kjörhiti við forræktunina. Til þess að fá bústnari plöntur er klipið ofan af stönglunum eftir að tvenn blaðpör hafa myndast. Gefið blómaáburð vikulega eftir að nývöxturinn er orðinn jafnhár pottinum. Dalíum má svo planta út í garð þegar hætta á frosti er liðin hjá. Hlýtt dumbungsveður er heppilegast til útplöntunar. Prik er sett með hverjum stöngli við gróðursetninguna og plantan bundin upp við það um leið og hún vex. Ráðlegt er að skýla plöntunum fyrstu dagana með því að breiða yfir þær hvítan gróðurdúk. Það ver þær gegn viðbrigðum vegna birtu- og hitabreytinga.
|
Desemberkaktus (Jólakaktus)
Hvenær á að byrja að vökva desemberkaktus (jólakaktus)?
Um leið og knappar fara að sjást, en gættu þess að vökva sparlega og forðast gegnumtrekk. |
Eðalrósir
Mig vantar að vita hvort eðalrósir teljast til ágræddra rósa, það er með tilliti til þess hve djúpt þarf að gróðursetja slíkar rósir.
Já, eðalrósir, skúfrósir (Floribunda) og velflestar runnarósir sem eru til sölu hjá gróðrarstöðvum eru ágræddar og ráðlagt að ágræðsluhnúðurinn fari ca. 5-10 sm undir yfirborðið við útplöntum. |
Flauelsfjöður
Ég var að fá gefins blóm sem heitir Flauelsfjöður
Hvernig á að hirða um það svo það haldist áfram fallegt.
Flauelsfjöður er hálfskuggaplanta, þarf að þorna vel á milli vökvunar.
Hentar vel í norðurglugga. Gott að gefa áburð frá lok mars til október loka. |
Flugur og aðrar óværur á blómum valda skemmdum -
hvað á ég að gera?
Það má nota Bana 2 og úða 3-4 sinnum með viku millibili. Ofan á mold og blöð. Einnig má nota Húsa og Garðaúða |
Fucshia
Ég á fucshiu sem er enn mjög ræktarleg. Á ég að klippa hana og þá hvenær?
Þú átt að klippa hana í febrúar, jafnvel stækka pott ef þörf er og byrja svo áburðargjöf mánuði síðar. |
Friðarlilja
Hvernig er best að hugsa um friðarlilju? Má hún standa við sólríkan glugga?
Þarf hún mikla vökvun? á að setja hana strax í stærri pott?
Friðarlilja er hálfskuggaplanta og hentar því vel inn af glugga eða í norðurglugga. Hún er látin þorna aðeins á milli vökvunar. Þarf ekki stærri pott fyrr á næsta ári. |
Gardenia (Lús)
Það er lús á gardeníunni minni, hvernig losna ég við hana?
Það er til lúsaspray sem heitir Húsa og Garðaúði sem hægt er að nota. Þarf að úða 3-4 sinnum með viku millibili. |
Gardenia(umhirða)
Sum blöðin gulna og knúpparnir þorna upp. Hvað er til ráða.
Gefa henni áburð súran, jafna vökvun og hún þarf góða birtu en ekki beina sól
Gefa henni séns, er dálítið viðkvæm fyrir flutningi |
Gloxinia
Ég var að kaupa hnýði af Gloxiniu, en veit ekki hvernig það á að snúa þegar ég set það niður.
Gloxiníuhnýðið á að liggja á bumbunni, og dældin þar sem sprotarnir koma í ljós, á að snúa upp. |
Hamingjublóm
Ef eitthvað af blaði deyr á Hamingjublómi sker maður það af eða hvað?
Já best er að gera það. Það mun koma nýtt blað eftir það |
Kaktus
Á maður eitthvað að vökva kaktusa yfir vetrarmánuðina,eða þurfa þeir algjöra hvíld. Fer það kannski eftir hitastigi þar sem þeir eru ?
Kaktusa á að vökva mjög lítið í skammdeginu sem telst vera; nóvember, desember, janúar, febrúar. Standi kaktusar í glugga þar sem ofn er undir má dreypa á þá á 2-3 vikna fresti. Standi þeir á svölum stað þurfa þeir minni vökvun. Svöl staðsetning örvar blómamyndun á kaktusum sem blómstra eftir hvíldartímann. |
Yukka (Jukka)
Ef ég ætla að taka hana í sundur þarf ég þá ekki að setja eitthvað í sárið?
Hvernig á að hugsa um Yukku?
Í sárið Gott er að setja ólitað kertavax á sárið.
Umhirða
Yukka þarf mjög litla vökvun 1 sinni í mánuði yfir vetrartímann og 1 sinni á 10 daga fresti yfir sumarið Yukka þarf mjög góða birtu og þolir jafnvel mikla sól. |
Jólahýasintulaukar
Ég er nýbún að kaupa mér jólahýasintulauka, setti þá niður samkvæmt leiðbeiningum
sem ráðleggja geymslu á dimmum stað við 9-11° hita í 8-9 vikur.
Þarf ég að vökva laukana þennan tíma?
Þarf að vökva jólahýasintulauka meðan á kælimeðferð stendur?
Það er ekki mikið sem þarf að vökva á meðan kælimeðferð stendur. Það er rétt að vökva smávegis við gróðursetningu og kíkja svo á þá á þriggja vikna fresti og bæta á smá vatni sé moldin farin þorna. En það er ekki mikil uppgufun á þessum tíma, rakinn í moldinni á rétt að duga til að halda lauknum stinnum og örva rótarmyndunina. |
Jólastjarna
Hvernig og hve oft á að vökva Jólastjörnu?
Á að vökva undir pottinn eða ofan í moldina?
Jólastjörnuna á að vökva ca 2svar í viku. 1-2 desilítra í senn, en vatnsþörfin getur verið breytileg eftir birtu og hita. Planta á svölum stað og/eða planta í lítilli birtu notar minna vatn. Jólastjarnan má þorna aðeins á milli vökvunar. Best er að vökva ofan frá og ekki láta hana standa í vatni. Jólastjarnan þolir mjög illa gegnumtrekk. |
Orkideur
Hvað geri ég til að fá orkideu til að blómstra aftur?
Hvernig hugsar maður um Orkideur
Til að fá orkideu til blómstra aftur Ekki neitt nema bíða róleg, það væri líka gott að geyma hana á svalari stað.
Umhirða Orkideu tegundin Phalaenopsis sem er algengust sem stofublóm er nokkuð auðveld í umhirðu. Plantan á að standa í góðri birtu, gjarnan norður, austur eða vestur glugga. Á sumrin (apríl - ágúst) má hún gjarna standa nálægt glugga sem gefur góða birtu þó ekki í suður glugga. Blómin geta staðið frá 6 vikum í allt að 3 mánuði.
Við ráðleggjum að hún sé vökvuð 1 sinni í viku og þá ca 1 dl af vatni, en ef plantan er á björtum, heitum stað þarf hún meira vatn, en má ekki standa í vatni.
Það má gefa henni væga áburðarblöndu yfir sumarið. Heitt og þurrt loft hentar henni ekki. |
Pálmatré Hvernig á ég að umgangast þetta fallega tré ?
Pálmar þurfa frekar góða birtu en ekki beina sól. Einnig jafna vökvun þ.e. vökva oft en lítið í einu. Gott er að gefa áburð frá mars til októberloka. Ef þurrt loft er til staðar er gott að úða reglulega. |
Sýprus - Sýpris
Hvernig er best að viðhalda sýprus innandyra.
Hvað þarf að vökva hann oft og mikið
Sýprus endist best innanhúss með því að hafa hann úti í glugga og vökva reglulega 2-3svar í viku, án þess að hann standi alltaf í vatni. Auðvitað má punta með honum hvar sem er innanhúss, en þá eru ekki eins góðar líkur á að sýprusinn lifi til vors eins og hann getur gert í glugga, og þá má setja hann í pott. Í þessu tilviki er ég að tala um litla sýprusinn, þeir stærri eru mun erfiðari innanhúss, nema ef þeir væru þá staðsettir í svölum gróðurskála. |
Venusarhár
Hvernig á að vökva það, hve oft á að gera það og þarf ég að nota næringu?
Venushár er af arnarburnaætt og þarf góða birtu en ekki beina sól. Best er að vökva oft en lítið í einu þannig að moldin sé alltaf rök. |