Blómaval var stofnað 1. september 1970 af bræðrunum Bjarna og Kolbeini Finnssonum.
Frá upphafi hefur verið lögð áhersla á að þjóna blóma- og garðyrkjuáhugafólki með því að bjóða upp á fjölbreytta og góða vöru á góðu verði, með sérstaka áherslu á afskorin blóm og skreytingar.
Blómaval var lengst af fjölskyldufyrirtæki sem óx hratt undir stjórn bræðranna og fjölskyldu þeirra og varð fljótlega langstærsti smásöluaðilinn í blómageiranum.
Samhliða því varð mikill vöxtur í öllu sem viðkemur þjónustu við garðeigendur.
Blómaval innleiddi fyrst allra verslana á Íslandi stórmarkaðssölu á íslensku grænmeti og þannig má segja að blómin, garðurinn og grænmetið séu sú þrenning sem starfsemi Blómavals snýst um.
Árið 2000 keypti Húsasmiðjan Blómaval og í dag eru sjö Blómavalsverslanir víða um land.
Í Október 2005 flutti Blómaval úr Sigtúni í glæsilega verslun við Skútuvog.
Fastráðnir starfsmenn Blómavals eru um 50.