Heilsutorgið í Blómaval býður upp á mikið og spennandi vöruúrval.
Þar finnur þú m.a. lífrænt ræktað grænmeti, ávexti, kornmeti, sælkeravörur, mjólk, jógúrt,sojavörur,osta,kaffi, te, snyrtivörur, vítamín og úrval af heilsuvörum úr lífrænt ræktuðu hráefni.
Vissir þú?
Að Heilsutorg Blómavals er eini smásöluaðilinn á Íslandi sem hefur vottun frá Tún ehf sem fyrirtæki sem tekur við lífrænum hráefnum til sölu?

Lífrænar vörur eru  framleiddar með sjálfbærum aðferðum og án eiturefna,hormóna og erfðabreyttra efna.

Með lögum nr.162/1994 og reglugerð nr. 74/2002 er öllum sem markaðssetja vörur með tilvísun til lífrænna aðferða gert skylt að hafa vottun viðurkenndrar vottunarstofu.  Þetta á við um allan feril vörunnar.  Fyrirtæki sem taka við lífrænum vörum til vinnslu eða til sölu þurfa að uppfylla þessi lagaákvæði.

Heilsutorgið í Skútuvogi er opið alla daga til 18  / Sími 5 800 518 Benedikta Jónsdóttir